Alfreð Elías var að vonum svekktur eftir tap sinna stelpna á móti Val í kvöld. Selfoss átti lítinn séns í kvöld gegn
Lestu um leikinn: Valur 8 - 0 Selfoss
"Skellur, við ætluðum nátturlega gera betur en það vantaði að við myndum spila betur saman sem lið en við vorum bara 2-3 númerum of litlar" Sagði Alfreð Elías eftir leik
Valskonur réðu öllu á vellinum í kvöld og gátu hæglega skorað fleiri mörk. Caitlyn í marki Selfoss átti nokkrar góðar vörslur í kvöld.
"Þeir sem horfðu á leikinn hann hefði getað farið í tveggja stafa tölu, markmaðurinn hélt okkur á floti
Selfoss pressaði Valskonur stíft í fyrri hálfleik og komu þeim nokkrum sinnum í vandræði. Var það eitthvað sem Selfoss lagði upp með fyrir leik að pressa svona ofarlega
Já við ætluðum að leggja á þær og koma þeim á óvart og við komum þeim á óvart og það var 0-0 eftir 30 mínútur.
Alfreð segir að von sé á nokkrum leikmönnum að utan sem munu styrkja liði í sumar.
Athugasemdir























