Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 16. janúar 2023 16:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mudryk fer upp fyrir Antony á listanum yfir þá dýrustu
Mykhaylo Mudryk.
Mykhaylo Mudryk.
Mynd: Getty Images
Chelsea gekk frá kaupum á Úkraínumanninum Mykhaylo Mudryk um liðna helgi eftir mikla baráttu við Arsenal.

Talað er um að heildarverðmæti kaupa Chelsea á Mudryk sé 88 milljónir punda.

Þetta gerir hann að fimmta dýrasta leikmanni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Sky Sports birti í dag lista yfir sex dýrustu leikmennina í sögu deildarinnar.

Mudryk er núna fyrir ofan Brasilíumanninn Antony sem var keyptur til Manchester United síðasta sumar.

Jack Grealish er sá dýrasti í sögunni en belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku kemst tvisvar á þennan lista.


Athugasemdir
banner
banner
banner