Sádar gera allt til að fá Salah - Semenyo vill helst fara til Liverpool - Liverpool og Barca vilja Guehi
Höskuldur: Við Íslendingar ættum að fara kannast við þetta lið
Aron Snær: Svo hringir bara Kári Árna
Ólafur Ingi: Þá held ég að sigurinn skili sér
Jóladagatalið: Vona að þeir hafi verið á baki en ekki með hann í lúkunum
Jóladagatalið: Hvernig er að ganga í Feneyjum?
Jóladagatalið: Misskildi spurningu fréttamanns - „Setti hársprey og svona“
Jóladagatalið: Hægðir og lægðir
Jóladagatalið: Lárus Orri lét stjórnarmenn heyra það - „Vilja eignast vini upp á KA-svæði“
Jóladagatalið: Langbest að fá heyrnarlausa menn til að dæma leikinn
Jóladagatalið: Cillessen rauk úr viðtali eftir tap á Laugardalsvelli
Jóladagatalið: Gylfi lét boltum rigna yfir Jóa Berg
Aron Einars: Spenntur fyrir Davíð og öllu sem hann stendur fyrir
Jóladagatalið: Ólafur Karl Finsen í kleinu
Ray Anthony: Eigum eftir að styrkja okkur betur
Hjörvar Daði: Markmiðið er að fara upp
Damir: Auðveld ákvörðun að velja Grindavík
Höskuldur: Varnarmennirnir gátu aldrei verið þægilegir út af honum
Ágúst Orri: Hann fer nánast á rassgatið
Óli Skúla: Sýndi að hann er frábær leikmaður
Ólafur Ingi: Draumastaða er bara þrjú stig
   fim 20. nóvember 2025 10:48
Kári Snorrason
„Vissi að það yrði erfitt að kveðja en varð mun erfiðara en ég átti von á"
Kvenaboltinn
Jóhann Kristinn Gunnarsson.
Jóhann Kristinn Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur endaði í 3. sæti á afstöðnu tímabili.
Þróttur endaði í 3. sæti á afstöðnu tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég vissi að það yrði erfitt að kveðja Þór/KA en það varð miklu erfiðara en ég átti von á. Það er mitt lið og maður nær rosalega sterkri tengingu við leikmenn og fólkið í kring. Það er algjörlega frábært fólk þarna og leikmenn sem var mjög erfitt að kveðja,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson nýráðinn þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna. 

Jóhann tekur við Þrótti af Ólafi Kristjánssyni sem hætti til að verða aðstoðarmaður Þorsteins Halldórssonar hjá kvennalandsliðinu. Fótbolti.net hitti á Jóhann í gærdag og ræddi við hann um nýja starfið. 


Jákvæðni í Laugardal

„Þegar Óli (Kristjáns) hætti þá var haft samband og við ræddum saman í framhaldinu á því. Ég þurfti aðeins að vega og meta hlutina, þar sem ég var í góðu starfi og umhverfi hjá frábærum hópi í Þór/KA. Það var erfitt að taka þessa ákvörðun, en mér fannst þetta rétt fyrir liðið og stelpurnar þar að fá inn nýja rödd. Mér leist mjög vel á aðstæður, leikmannahópinn og allt í kringum þetta hjá Þrótti, þannig á endanum varð þetta niðurstaðan.“ 

„Mér finnst tónninn í fólki hérna vera góður, það er hugur í mannskapnum. Í leikmannahópnum og fólki sem stendur í þessu, það er eitthvað jákvætt í gangi eins og árangurinn í sumar sýndi fram á. Þær voru ekki langt frá þessu. Það eru góðir hlutir að gerast hérna og vonandi get ég hjálpað til við að gera gott enn betra.“ 

Engin bylting væntanleg

„Ég er ekki að koma með neina byltingu hingað inn, mér fannst gott að halda í starfsfólk sem var hérna á síðasta tímabili. Síðan fengum við Orra Sigurjónsson sem fitness þjálfara, sem er mjög sterkt. Ég vil halda leikmannahópnum eins óbreyttum og hægt er, þá kannski með sterkum viðbótum við þær sem fyrir eru.

Mér finnst mikilvægt að orkan fari í það næstu daga að kynnast þeim. Á næstu dögum förum við svo að sjá hvar landið liggur í leikmannamálum, ég vil skrúfa upp það sem fyrir er og bæta upp þessa litlu hluti sem hægt er að bæta til að komast yfir þennan þröskuld og komast enn lengra,“ sagði Jóhann að lokum, en viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner