„Ég er himinlifandi, við þurftum að gera nokkrar skiptingar, þar sem Sigdís og Bergdís komu út af. Bergdís hefur verið slæm í bakinu og Sigdís ekk 100 prósent, var smá veik og svo þær sem komu inn á, Freyja og Hulda voru frábærar.“ Þetta sagði John Andrews, þjálfari Víkings, aðspurður um fyrstu viðbrögð eftir leik kvöldsins.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
„Við sögðum í hálfleik að við héldum að við myndum vinna leikinn og er mjög ánægður.“
„Mér fannst hugrekkið á boltanum frábært, leikmennirnir á miðjunni, snúa og spila, við spiluðum fallegan fótbolta. Svo langur bolti í öðru markinu, það var líka skemmtilegt að sjá.“
„Höfum sagt það frá fyrsta degi að við þurfum að ná takti við deildina, mikið af leikmönnunum okkar hafa ekki spilað í Bestu deildinni áður, þannig við erum bara að byggja upp.“
„Við erum himinlifadi að lið eins og Stjarnan geti komið hingað og að við getum sigrað þær. Og þetta er í fyrsta sinn í sumar sem að við höfum unnið tvo í röð. Það er mjög mikilvægt.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan
Athugasemdir