Chelsea tilbúið að selja Enzo - Man Utd vill Gomes - Anderson og Wharton líka á óskalista United
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   sun 26. júlí 2020 16:48
Sverrir Örn Einarsson
Siggi Raggi: Týpískur klukkan tvö leikur
Lengjudeildin
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var svona týpískur klukkan tvö leikur þar sem við vorum ekki alveg vaknaðir nógu vel í fyrri hálfleiknum en samt 1-0 yfir. Við gáfum svo sem ekki mörg færi á okkur en ræddum það í hálfleik að við þyrftum að spýta í lófanna enda Vestri með gott lið og við vissum að við þyrftum að vera á tánum og gera betur í seinni hálfleik.“
Sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson annar af þjálfurum Keflavíkur eftir 4-1 sigur hans pilta á Vestra.

Lestu um leikinn: Keflavík 4 -  1 Vestri

Keflavík komst yfir snemma leiks en eftir markið bakkaði liðið fullmikið og stjórnaði Vestri umferðinni það sem eftir lifði hálfleiks. Fannst Sigurði markið setja hans menn niður á hælanna?

„Já það er kannski stundum svoleiðis ef maður skorar snemma í leik að það kemur slugs á mannskapinn en ég held að það hafi meira verið það að það er búið að spila mikið af leikjum, held að þetta sé sjötti leikurinn á 23 dögum og við erum búnir að keyra mikið á sama mannskap. Við höfum verið í töluverðum meiðslum með lykilmenn þannig að kannski sat smá þreyta i okkur.“

En þrátt fyrir að Vestri hafi stýrt spilinu stóran part leiksins hafði Keflavík eins og áður sagði 4-1 sigur.

„Við kláruðum verkefnið vel og ég var ánægður með liðið í heild sinni í dag. Skoruðum frábær mörk og maður getur ekki kvartað yfir liðinu sínu þegar það skorar fjögur mörk. Við erum búnir að skora 25 í sumar sem er bara geggjað í 8 leikjum. Svo við erum með yfir 3 mörk að meðaltali í leik og það er bara snilld. “

Sagði Sigurður en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner