Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
Kiddi Freyr: Ég kann þetta ennþá
Jökull: Ætluðum okkur alla leið en gerðum ekki nóg
Túfa: Lagt mikla vinnu til að verða liðið sem keppir aftur um titla
Óskar: Alltaf gaman að vera í besta liðinu á Íslandi
Bjarni Jó: Mikil reisn í þessu hjá Jóni Daða
Formaðurinn í skýjunum: Stærstu skipti í sögu félagsins
Tómas Þórodds: Jón Daði ekta karakter til að koma heim
Ítarlegt viðtal við Jón Daða - „Sú tilhugsun sat ekki nægilega vel í mér"
Þakklátur Fram fyrir tækifærið - „Sé mig spila lengur á Íslandi"
„Simon er eitthvað rugl góður og Fred líka"
Vann kapphlaupið við tímann - „Búin að leggja ógeðslega mikið á mig"
Gætu ekki beðið um betra umhverfi - „Sagði við Hafrúnu að núna væri þetta að gerast"
Eru fjórar hjá sama félaginu - „Er heppin með það"
Karólína Lea gefur ekkert upp þrátt fyrir háværar sögur
Maggi Már: Mér fannst við vera betri
Óskar Hrafn: Vonaði að það væri undantekningin sem sannaði regluna
Sölvi um Óskar Borgþórs: Bara "no comment"
Nikolaj Hansen: Ég er framherji og vil skora mörk
Heimir Guðjóns: Eigum ekki að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum
Morten Ohlsen eftir tap Vestra: Okkur var refsað
   lau 27. ágúst 2022 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Natasha um sögusagnir: Það hefur verið einhver umræða um það
Natasha skallar frá marki í dag.
Natasha skallar frá marki í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta er hundfúlt," segir Natasha Moraa Anasi, fyrirliði Breiðabliks, eftir tapið gegn Val í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í kvöld.

„Fyrri hálfleikurinn var mjög góður hjá okkur. Við náðum að gera það sem við vildum gera. Seinni hálfleikur var aftur á móti ekki nægilega góður og þær refsa okkur fyrir það."

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  2 Valur

„Það var mikil stemning í okkar liði þegar við fórum inn í klefa en svo kemur markið þeirra og við dettum aðeins niður við það. Það var basl hjá okkur eftir það."

„Eins og þú þekkir þá er búin að vera mikil hreyfing á okkar liði og við höfum spilað á alls konar liðum í sumar, en það hafa allir stigið vel upp. Það vantaði kannski að tengjast aðeins meira. Við getum pottþétt lagað þetta."

Það hafa verið sögur á kreiki um að Brann, sem er eitt besta liðið í Noregi, hafi áhuga á því að fá Natöshu í sínar raðir.

„Það hefur verið einhver umræða um það en núna er ég í Breiðabliki og að einbeita mér að því," sagði Natasha sem hefur áður komið inn á það að hún sé mjög ánægð í herbúðum Blika.

Allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner