Kristján Guðmundsson þjálfari Vals var ekki glaður í bragði er liðið tapaði 0-1 fyrir Eyjamönnum þrátt fyrir að vera manni fleiri allan seinni hálfleikinn.
,,Það er sárt að tapa og sérstaklega í fyrri hálfleik þegar við fengum fullt af færum meðan við erum jafnmargir," sagði Kristján í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
,,Það er aukaatriði hvort við séum fleiri inná því við unnum ekki nægilega mikla vinnu án boltans. Við færðum boltann alltof hægt."
Afmælishátið Vals fór fram í dag en hafði þá áhrif á leikmenn liðsins?
,,Það fer ákveðinn orka í afmælisvikuna, við notum það ekki sem afsökun. Við áttum að vinna á 100 ára afmæli Vals."
Nánar er rætt við Kristján í sjónvarpinu að ofan.






















