„Það var það sem varð okkur að falli í dag, við mættum bara ekki til leiks. Það var ekki fyrr en við vorum lentir 2-0 undir sem við byrjum að berjast. Baráttan er okkar aðalsmerki,“ segir Gunnar Már Guðmundsson, leikmaður Þórs.
Akureyrarliðið tapaði 3-1 á KR-vellinum í kvöld. Gunnar viðurkennir að það gæti hafa verið skrekkur í liðinu að spila á KR-vellinum en liðið byrjaði leikinn herfilega.
„Já ég held það, þó að menn viðurkenni það ekki. Tíu af ellefu voru að spila í fyrsta skipti í Frostaskjóli. Þetta er svolítið ógnvekjandi völlur.“
Gunnar spáir því að KR berjist um titilinn til loka. „Þetta er gríðarlega sterkt lið. Það eru frábærir menn í hverri stöðu og jafnvel tveir á hverja stöðu. Þeir verða í harðri baráttu á toppnum,“ segir Gunnar Már.
Rætt er við Gunnar í sjónvarpinu hér að ofan.























