Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 12. maí 2012 15:40
Ívan Guðjón Baldursson
Gattuso gæti verið á leið til Rangers: Mér leið eins og lukkudýri
Gull af manni.
Gull af manni.
Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso hélt fréttamannafund til að láta vita af framtíðaráformum sínum, en hann mun ekki framlengja samning sinn við AC Milan og verður því samningslaus í sumar.

Gattuso skilur þá við Milan ásamt öðrum kempum á borð við Alessandro Nesta, Mark van Bommel og Filippo Inzaghi, en búist er við að Gianluca Zambrotta og Clarence Seedorf fari einnig frá félaginu í sumar.

,,Ég vil þakka Milan og öllum þeim sem hafa hjálpað mér í gegnum árin," sagði Gattuso á fréttamannafundinum.

,,Ég hef lifað drauminn, spilandi fyrir Milan í meira en 13 ótrúleg ár. Að spila í búningnum sem er næst hjarta mínu er frábært. Núna heldur lífið áfram.

,,Ég ætla ekki að hætta í atvinnumannaknattspyrnu. Ég og fjölskyldan mín munum ákveða saman hvar ég mun spila á næsta tímabili. Ég færi aldrei til Inter eða Juventus vegna þess að ég ber of mikla virðingu fyrir Milan, en þessi félög vilja mig hvort sem er ekki í herbúðir sínar svo að það ætti ekki að vera neitt vesen,"
sagði svo Gattuso í gríni.

,,Fyrir nokkrum mánuðum vildi ég hætta að spila eftir þetta tímabil og taka við einhverju starfi innan félagsins. Mér hefur liðið eins og lukkudýri upp á síðkastið, en núna er ég klár í slaginn aftur.

,,Ég vil þakka Carlo Ancelotti sérstaklega fyrir samstarfið. Hann var mér eins og faðir. Carletto er Carletto, mér finnst að það ætti að reisa styttu honum til heiðurs. Milan á tímum Ancelotti var álíka gott og Barcelona hefur verið undir stjórn Pep Guardiola.

,,Besta stund mín hjá Milan var þegar við unnum Inter og Juventus í sigri okkar á Meistaradeild Evrópu 2003. Versta stundin er eflaust þegar við töpuðum gegn Liverpool í úrslitaleiknum 2005. Næstu sex mánuðina vaknaði ég við martraðir þar sem mig dreymdi Steven Gerrard og liðsfélaga hans fagnandi titlinum.

,,Draumur minn er að spila í Rangers búning aftur. Rangers er í slæmri stöðu eins og er, það er mikið af vandamálum þar á bæ og liðinu vantar eiganda. Ef ég hlusta á hjartað þá enda ég hjá Rangers. Mig langar að enda ferilinn þar sem ég hóf hann."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner