Chelsea tilbúið að selja Enzo - Man Utd vill Gomes - Anderson og Wharton líka á óskalista United
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   lau 07. júlí 2012 18:11
Brynjar Ingi Erluson
Halldór Jón: Mjög gott fyrir framhaldið og sjálfstraustið
Halldór Jón Sigurðsson
Halldór Jón Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er bara gríðarlega ánægður og stoltur. Mjög gott Tindastólslið í dag, spiluðum feykilega öfluga tvo hálfleika. Við sóttum af krafti og pressuðum þá hátt uppi," sagði Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls eftir 6-2 sigur á Hetti í dag.

,,Við gerðum vel á mjög á mörgum stöðum á vellinum og sköpuðum okkur miklu fleiri færi til þess að skora fleiri mörk. Þannig ég var bara virkilega sáttur með og glaður með framlagið í dag og leikinn."

,,Við þekkjum þetta lið töluvert vel. Ég held að ég hafi þjálfað helminginn af þeim í vetur og þekki alla leikmenn liðsins mjög vel, svo við vissum þeirra veikleika og styrkleika, við lögðum upp með að pressa þá framarlega og ætluðum okkur að setja mörk og það gekk vel."

,,Sóknin okkar fékk töluvert fleiri færi til þess að skora mörk og mér fannst þeir ekki fá mörg færi, en þeir fengu fullt af föstum leikatriðum. Við vörðumst því ágætlega, þannig það var flott."

,,Við lögðum upp fyrir tímabilið að reyna að reyta eins mörg stig á heimavelli og við getum, við vitum að við þurfum að standa okkur vel þar. Þetta er rosalega erfið deild og það er mikilvægt og gott fyrir okkur að fara upp fyrir nokkur lið. Það er mjög gott fyrir framhaldið og sjálfstraustið hjá strákunum."

,,Það eru tíu dagar í næsta leik, það er kærkomið frí. Við erum með nokkra sem eru laskaðir, en algerlega frábærir þeir sem spiluðu dag. Ég hef engar áhyggjur ef að menn stíga svona upp þegar aðrir í meiðslum þá ættum við að geta staðið okkur þokkalega vel,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner