„Það er gaman að spila á 3-4 daga fresti. Það er það sem þú vilt gera. Topp leikmenn ráða við þetta og það er gaman að eiga svona sumar. Það er gott að fá Evrópuleiki því mér finnst ekki nóg að spila 22 leiki í deildinni," sagði Steven Lennon, framherji FH, við Fótbolta.net fyrir æfingu í gær.
FH mætir Maribor í síðari leik liðanna í 3. umferð Meistaradeildarinnar annað kvöld. FH tapaði 1-0 í fyrri leiknum í Slóveníu í síðustu viku.
„Við stóðum okkur ágætlega þar. Þeir eru með lið sem er gott í að halda boltanum. Ef við náum að halda boltanum betur sjálfir þá getum við vonandi gert eitthvað í sókninni," sagði Lennon.
Leikurinn annað kvöld hefst klukkan 18:30 og Lennon vonast eftir góðum stuðningi.
„Við elskum að spila fyrir framan áhorfendur. Það voru 9000 áhorfendur á fyrri leiknum og það var frábært. Ég vona að allir fótboltaaðdáendur á Íslandi komi og styðji okkur, ekki bara stuðnibgsmenn FH," sagði Lennon.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir























