Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. febrúar 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Jón Daði rúllaði upp Metallica lagi
Jón Daði Böðvarsson hefur gaman af því að glamra á gítarinn
Jón Daði Böðvarsson hefur gaman af því að glamra á gítarinn
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson er ekki bara með hæfileika á vellinum heldur virðist hann ansi vel að sér á rafmagnsgítar en hann birti myndband af sér á Youtube glamra á gítarinn.

Jón Daði er á mála hjá Millwall í ensku B-deildinni en hann hefur einnig getið sér gott orð hjá félögum á borð við Reading og Wolves.

Hann eyðir frítíma sínum vel og sýnir stuðningsmönnum afraksturinn en hann deildi myndbandi á Youtube af sér spila lagið Master of Puppets með Metallica.

Master of Puppets er án efa eitt þekktasta lag Metallica en það er af samnefndri plötu sem var þriðja plata hljómsveitarinnar og gefin út árið 1986. James Hetfield og Kirk Hammett sáu um að taka sólóið í því lagi en hér fyrir neðan má ábreiðu frá Jóni Daða.


Athugasemdir
banner
banner
banner