Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   fim 13. júlí 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara Björk: Held að við séum betri í dag
Kvenaboltinn
Sara verður með fyrirliðabandið í Hollandi.
Sara verður með fyrirliðabandið í Hollandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er öðruvísi, já" sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, um það hvort tilfinningin fyrir EM í Hollandi, sem hefst eftir nokkra daga, væri öðruvísi en fyrir önnur hin Evrópumótin sem hún hefur farið á.

„Það er allt stærra í kringum þetta stórmót. Það er miklu meira af fjölmiðlum og miklu meiri hvatning í kringum liðið."

Sara er bjartsýn fyrir mótið og telur möguleikana góða.

„Ég tel möguleikana mjög góða. Við erum með góð markmið og háleit markmið sem við erum staðráðnar að ná."

Sara gekk í raðir þýska stórliðsins Wolfsburg og það hefur hjálpað henni mikið. Wolfsburg er eitt besta félagslið heims.

„Það hefur hjálpað mér mikið, ég hef bætt mig mikið sem leikmaður, ég er orðin betri og hef meira sjálfstraust. Það er eitthvað sem ég get gefið í landsliðið."

Hún segir að þetta landslið sé betra en hin tvö liðin sem fóru á EM fyrir fjórum og átta árum síðan.

„Við erum klárlega betri og með hverju árinu finnst mér við vera að bæta okkur, leikmenn eru að verða betri. Með hverju árinu verðum við betri."

„Ég fór bjartsýn inn í hitt mótið og við stóðum okkur frábærlega en ég held að við séum betri í dag," sagði Sara að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner