Áhugi Liverpool á Todd Cantwell hefur aukist undanfarna mánuði að sögn The Athletic.
Liverpool hefur sýnt þessum 21 árs gamla miðjumanni áhuga síðan í ágúst en undanfarnar vikur hefur áhuginn aukist meira. Cantwell hefur skorað sex mörk og lagt upp tvö í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Manchester City, Tottenham og Manchester United hafa líka áhuga á Cantwell en Liverpool ku vera í bílstjórasætinu í baráttunni um hann.
Cantwell hreif þjálfarateymi Liverpool enn á ný í leik liðanna á laugardag þar sem Liverpool hafði sigur 1-0.
Norwich er líklega á leið niður úr ensku úrvalsdeildinni en félagið er sagt vilja fá 30 milljónir punda fyrir Cantwell í sumar.
Athugasemdir