Það fóru nokkrir æfingaleikir fram í dag þar sem HK lagði Kára að velli í fyrsta leik Gunnars Heiðars Þorvaldssonar við stjórnvölinn.
Jóhann Þór Arnarsson, Atli Þór Gunnarsson og Þorvaldur Smári Jónsson skoruðu mörk HK í þægilegum sigri.
Haukar lögðu þá Fylki að velli 3-2 en það vantar markaskorara Hauka úr sigrinum, á meðan kvennalið Fylkis rúllaði yfir sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur. Þar skoraði Arna Ósk Arnarsdóttir þrennu í sínum fyrsta leik fyrir Fylki.
Kvennalið Aftureldingar sigraði að lokum eftir fjörugan leik gegn Smára.
HK 3 - 0 Kári
Mörk HK:
Jóhann Þór Arnarsson
Atli Þór Gunnarsson
Þorvaldur Smári Jónsson
Haukar 3 - 2 Fylkir
Mörk Fylkis:
Guðmundur Tyrfingsson
Olivier Napiórkowski
Fylkir 6 - 1 Grindavík/Njarðvík
Mörk Fylkis:
Arna Ósk Arnarsdóttir (3)
Birta Margrét Gestsdóttir (2)
Katla Sigrún Elvarsdóttir
Afturelding 4 - 3 Smári
Mörk Aftureldingar:
Katla Jónsdóttir
Lana Abdkalek
Adna Mesetovic (2)
Athugasemdir



