Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   lau 12. mars 2011 15:41
Hafliði Breiðfjörð
Viðar Guðjóns: Viljinn var til staðar en líkaminn fylgdi ekki með
,,Ég get ímyndað mér að það hafi verið sérstaklega leiðinlegt að horfa á þetta sem áhorfandi," sagði Viðar Guðjónsson miðjumaður Fjölnis eftir markalaust jafntefli við ÍBV í Lengjubikarnum í dag en aðeins eitt færi var í öllum leiknum.

Fjölnir hafði spilað á fimmtudagskvöldið í 7-0 sigri á HK og ÍBV spilaði síðast í gærkvöld í leik sem lauk undir miðnætti.

,,Tempóið var gríðarlega lágt enda liðið þreytt og stutt síðan við spiluðum síðast. Ég get alveg sagt þér að það var ekkert sérstaklega gaman að spila þetta heldur, viljinn var til staðar og hugurinn en líkaminn fylgdi ekki með."

,,Menn eru bara þreyttir og ekki vanir að spila með svona stuttu millibili, sérstaklega á undirbúningstímabilinu, þá eru þetta oft svona leikir. Mikið af feilsendingum og mikið af því að menn ætla að reyna að rífa sig framhjá manni en gátu það hreinlega ekki af því að lappirnar þoldu það ekki."

,,En það eina jákvæða við þetta var að við töpuðum ekki miðað við hversu slakir við vorum en ætli Vestmannaeyingar segi ekki það sama."


Nánar er rætt við viðar í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner