Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   mán 28. mars 2011 23:22
Magnús Már Einarsson
Eyjólfur Sverrisson: Þeir spiluðu stórglæsilega í dag
Magnús Már Einarsson skrifar frá Englandi
Eyjólfur Sverrisson
Eyjólfur Sverrisson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þeir spiluðu stórglæsilegan leik í dag og alveg með ólíkindum að sjá þorið í leikjunum. Það er mikill vilji, og þeir ætla sér langt. Maður sér það, og sérstaklega hvað þeir eru fljótir að breyta frá vörn í sókn, og sókn í vörn, það er algjörlega til fyrirmyndar," sagði Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðsins eftir 1-2 sigur á Englandi í vináttuleik ytra í kvöld.

,,Þó við lendum undir þá höldum við okkur við okkar kerfi og höldum áfram að spila fram á við og verjumst vel. Oft vantaði bara síðustu sendingu upp á að við værum sloppnir í gegn í skyndisóknunum okkar. Við fengum góð færi í þessum leik og ég myndi segja að þetta væri verðskuldaður sigur."

Eyjólfur gerði nokkrar breytingar frá leiknum gegn Úkraínu á fimmtudaginn og var án leikmanna sem spiluðu hvað mest með A-landsliðinu. Því er ljóst að hann hefur úr mörgum mönnum að spila sem gera honum erfitt fyrir að velja.

,,Heldur betur, það er verið að gera okkur heldur betur erfitt fyrir að velja liðið. Það hefur verið gott alla keppnina og fullt af góðum strákum eins og ég hef alltaf sagt. Þetta er vaxandi lið sem verður alltaf heilsteyptara og betra. Menn vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera á vellinum og við erum að róa í sömu átt. Það virðist koma maður í manns stað."

Haraldur Björnsson var byrjunarliðsmarkvörður í báðum leikjunum og var sendur til móts við aðal landsliðið á laugardaginn þar sem hann var á bekknum gegn Kýpur. En verður hann aðalmarkvörður í sumar?

,,Halli er búinn að spila flesta leiki með okkur sem fyrsti markmaður. Hann hefur staðið sig gríðarlega vel. En við erum líka fegnir að hafa Arnar Darra sem kom inná núna og stóð sig virkilega og stóð sig virkilega vel og var mjög öruggur í sínum aðgerðum. Við eigum líka fleiri heima, góðir markmenn sem eru á uppleið og við munum fylgjast með. Við lokum ekki á eitt eða neitt, það eiga allir jafna möguleika, en Halli er búinn að gera sitt fyrir liðið."

Nánar er rætt við Eyjólf í sjónvarpinu hér að ofan.

Slapp
banner
banner