Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   fös 08. apríl 2011 22:04
Magnús Már Einarsson
Ejub Purisevic: Við erum með ágætis lið
Ejub Purisevic.
Ejub Purisevic.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
,,Það er mjög gott að halda hreinu. Það var svolítið hátt tempó í fyrri hálfleik og við vorum svolítið heppnir í nokkrum tilvikum," sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings frá Ólafsvík við Fótbolta.net eftir 2-0 sigur liðsins á Fjölni í kvöld.

Ólafsvíkingar héldu einnig hreinu í 1-0 sigri á Leikni fyrr í vikunni og Ejub er ánægður með varnarleikinn.

,,Við erum byrjaðir að spila aðeins betri vörn. Síðustu tíu mínúturnar hættum við að pressa á miðjunni og frammi og þá fáum við á okkur færi þannig að ég tel að við getum bætt okkur alls staðar á vellinum með varnarleik."

Víkingur hafði mikla yfirburði í annarri deildinni í fyrra og Ejub telur að liðið geti staðið sig í fyrstu deildinni í sumar.

,,Ég held að við getum staðið okkur ágætlega. Við erum með ágætis lið en það eru jöfn og fín lið í fyrstu deildinni. Ég held að það verði spenna lengst af í mótinu."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner