Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   mán 25. apríl 2011 22:56
Elvar Geir Magnússon
Ólafur Þórðarson: Skandall hjá dómaranum
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, segir að það hafi verið fullt af jákvæðum punktum í spilamennsku síns liðs þrátt fyrir tap gegn Val í úrslitaleik Lengjubikarsins í kvöld. Hann segir það svekkjandi að liðið hafi ekki náð að nýta yfirburði sína í fyrri hálfleik til að skora meira en eitt mark.

„Það er samt jákvætt að við vorum að spila mjög vel og skapa fullt af færum, við þurfum bara að nýta þau betur til að slútta svona leikjum. Liðið var að fúnkera vel og við vorum að gera fullt af flottum hlutum,“ segir Ólafur.

„Það fjaraði aðeins undan þessu hjá okkur. Mér fannst Valsmenn fá þessa vítaspyrnu sem þeir jafna úr frekar ódýrt. Þá missum við svoldið hausinn.“

Ólafur var heldur ekki sáttur við aðdragandann að þriðja marki Vals. Christian Mouritsen var búinn að fá aðhlynningu og Magnús Þórisson dómari hleypti honum inn í leikinn að nýju sem viðbót í miðri skyndisókn Hlíðarendaliðsins.

„Það er náttúrulega bara skandall hjá dómaranum,“ segir Ólafur um atvikið en nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner