Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   mán 02. maí 2011 23:04
Magnús Valur Böðvarsson
Bjarni Jó: Var hann að verja á sér sixpakkið?
Bjarni Jóhannsson var ekki sáttur með Kristinn Jakobsson dómara
Bjarni Jóhannsson var ekki sáttur með Kristinn Jakobsson dómara
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar var hundfúll í leikslok þar sem Stjörnumenn biðu lægri hlut gegn baráttuglöðum Keflvíkingum í kvöld. Hann taldi að ákveðnir hlutir hefðu ekki fallið með þeim í dómgæslunni sem gerði útslagið.

,,Ég er klárlega hundfúll yfir því að ná ekki í stig og fannst við mjög sprækir framan af leik. Við gáfumst aldrei upp að ná í sigurinn en það var auðvitað smá einbeitingarleysi sem kostuðu þessi tvö mörk þarna í lokin og sérstaklega mörk númer tvö og þrjú þarna í lokin fannst mér frekar sorgleg," sagði Bjarni við Fótbolta.net eftir leik.

,,Mér fannst Gummi taka boltann með hendinni niður í marki númer þrjú og svo var vítið sem við fengum á okkur ein sorgarsaga. Boltinn fer útaf við miðlínu og innkastið er tekið tuttugu metrum framar og ef það er rétt að Leiknir aðstoðardómarinn hinum megin á vellinum hafi dæmt vítið þá veit ég ekki hvar við erum staddir í þessu," sagði Bjarni sem var hundfúll með vítaspyrnudóminn sem Keflvíkingar fengu.

Stjörnumenn gerðu sjálfir tilkall til vítaspyrnu og höfðu líklega eitthvað til síns máls.

,,Hann ver bara boltann, hann er ekki að verja andltið á sér eitt eða neitt, hann ver bara boltann á línunni með höndunum, ég meina hvað var hann að verja sixpakkið á sér og Kiddi sá það vel."

,,Þetta var mjög jafn leikur og það sem datt með þeim í dómgæslunni pirraði okkur og við héldum ekki alveg nógu góðri einbeitingu en þetta er víst hluti af leiknum."

Stjörnumenn komust samt tvisvar sinnum yfir í leiknum en þurfa líklega eitthvað að skoða varnaleikinn hjá sér fyrir næsta leik.

,,Við komumst yfir tvisvar í leiknum og fáum á okkur mark mjög fljótlega þannig að auðvitað þurfum við að laga alveg helling við erum rétt að komast á grænt gras og höfum ekki tekið eina einustu æfingu á grasi þannig að það er alveg hellingur sem þarf að laga", sagði Bjarni að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner