Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   sun 17. febrúar 2019 19:02
Arnar Helgi Magnússon
Lengjubikar kvenna: Þór/KA og Stjarnan sættust á stig
Úr leiknum í kvöld
Úr leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA 1 - 1 Stjarnan
0-1 Birna Jóhannsdóttir (41' )
1-1 Margrét Árnadóttir (67')

Þór/KA og Stjarnan skildu jöfn þegar liðin mættust í Boganum á Akureyri fyrr í dag. Um var að ræða leik í A-deild Lengjubikarsins.

Stjarnan komst yfir í leiknum þegar Birna Jóhannsdóttir skoraði en markið kom rétt fyrir hálfleik, á 41. mínútu.

Margrét Árnadóttir jafnaði fyrir Þór/KA þegar síðari hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli niðurstaðan á Akureyri.

Þetta var annar leikur Stjörnunnar í Lengjubikarnum en liðið tapaði fyrir Val á dögunum. Þór/KA var að leika sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í dag en liðið mætir einmitt Val í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner