Heimild: Twitter
Michael Owen, framherji Manchester United, varð í dag enskur meistari í fyrsta sinn á ferlinum.
Manchester United tryggði sér 19. meistaratitil sinn með 1-1 jafntefli gegn Blackburn.
Owen sat allan tímann á bekknum í dag en hann hefur náð að leika tíu leiki á tímabilinu og því er ljóst að hann fær medalíu eins og aðrir leikmenn liðsins um næstu helgi.

,,Þvílík tilfinning! Það er langt síðan ég vann eitthvað" skrifaði Owen á Twitter síðu sína eftir leikinn í dag.
,,Það eru forréttindi að spila með þessum leikmönnum og undir stjórn stjórans. Þetta gæti orðið rosalegt kvöld!!!"