Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   fös 12. nóvember 2010 18:08
Matthías Freyr Matthíasson
Ian Jeffs: Hlakka til að byrja aftur í hvítu treyjunni
Ian skrifaði undir samningi við ÍBV í dag
Ian skrifaði undir samningi við ÍBV í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Mér líður bara vel með þetta. Þetta var eitthvað sem við erum búnir að vera í sambandi með í nokkrar vikur að tala um samning og ég er búinn að tala við Heimi og þetta lítur mjög vel út," sagði Ian Jeffs sem í dag skrifaði undir eins árs samning við ÍBV.

,,Auðvitað eru spennandi tímar framundan. Evrópukeppni og það gekk mjög vel hjá þeim síðasta sumar og vonandi að það haldi áfram og það er skemmtilegur tími framundan hjá ÍBV."

Því hefur verið haldið fram að Jeffs hafi átt sinn besta tíma á Íslandi sem knattspyrnumaður þegar hann hefur spilað með ÍBV.

,,Já ég er sammála því. Ég átti mjög góð þrjú og hálft ár í ÍBV og ég hlakka til að byrja aftur í hvítu treyjunni."

Jeffs hefur spilað undanfarin tvö tímabil með Val en samningur hans við félagið rann út í haust. Hvernig var tíminn hjá Val og viðskilnaðurinn við þá?

,,Þetta var svoldið upp og niður, ég spilaði undir stjórn þriggja eða fjögurra þjálfara þar og það gekk illa 2009. Mér fannst þetta vera að ganga vel hjá Willum en eftir að hann hætti að þá gekk svoldið illa og þetta var bara eins í sumar hjá Gulla, gekk vel í byrjun en við kláruðum mótið ekki vel. En eins og ég segi þetta er búið að vera upp og niður," sagði Ian Jeffs í samtali við Fótbolta.net.

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner