Keflavík er fyrsti sigurvegari Fótbolta.net mótsins eftir að hafa unnið ÍBV í úrslitaleik í Kórnum í dag.
,,Það er bikar í hús, þetta er fyrsta mótið, smá undirbúingur fyrir deildabikarinn. Kærkomið mót sem er mótvægi við Reykjavíkurmótinu. Við fengum fjóra skemmtilega leiki og það var bara gaman af þessu," sagði Guðmundur Steinarsson framherji Keflavíkur eftir leik.
,,Það var hörkuleikur í dag. Þetta voru tvö góð lið sem eru búin að spila mikið. Maður sá að þetta eru þau lið sem eru lengst komin í dag á þessum tímapunkti og fyrir vikið var þetta fínasti fótboltaleikur."
Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem staðan úr fimm spyrnum var 3-2 og ljóst að sumar spyrnurnar voru slakar.
,,Það voru nokkrir sem klikkuðu og gerðu þetta spennandi en þetta hafðist að lokum. Ég er alltaf öruggur og alltaf klár í þetta."























