Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var ekki sáttur við fyrri hálfleikinn hjá sínum mönnum í kvöld. Liðið tapaði 0-2 fyrir Keflavík í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum.
Marga sterka leikmenn vantaði í Breiðabliksliðið í leiknum, sumir eru á meiðslalistanum og aðrir að reyna fyrir sér erlendis. „Þetta er bara sá mannskapur sem við höfum úr að moða. Það voru þarna leikmenn sem stóðu sig vel sem eiga ekki marga meistaraflokksleiki að baki. Svo voru aðrir leikmenn sem eiga marga leiki og mörg ár á bakinu sem voru ekki að bera þetta uppi,“ sagði Ólafur eftir leikinn.
„Mér fannst menn koma með rétt hugarfar í seinni hálfleikinn og það var skömminni skárra. Það var allt skelfilegt hugarfar í fyrri hálfleik. Menn héldu að þetta kæmi af sjálfu sér og medalíurnar sem menn fengu um hálsinn í september 2010 voru eitthvað að þvælast fyrir mönnum en þær gefa þér ekkert í dag.“
Blikaliðið skoraði ekki mark í hefðbundnum leiktíma í þremur leikjum í Fótbolta.net mótinu og áfram halda ófarir liðsins fyrir framan mark andstæðingana. „Það er áhyggjuefni þegar þú skorar ekki. Það sem ég lagði upp með fyrir þennan leik var að varnarleikurinn yrði traustur. Það er ljóst að þeir sem báru kannski sóknarleikinn uppi á síðasta tímabili eru ekki með okkur í dag. Þá verða aðrir að stíga inn,“ sagði Ólafur.






















