Magnús Már Einarsson skrifar frá Edinborg
,,Við erum í gríðarlega góðum séns. Við erum yfir eftir fyrri leikinn, spiluðum mikið betur en þeir og litum miklu betur út þannig að við erum í mjög góðu tækifæri á að komast áfram myndi ég halda," sagði Eggert Gunnþór Jónsson leikmaður U21 árs landsliðsins við Fótbotlta.net í gærkvöldi en liðið mætir Skotum í kvöld í síðari leiknum í umspili um sæti á EM.
Íslensku strákarnir höfðu betur 2-1 í fyrri leiknum sem fór fram á Laugardalsvelli síðastliðinn fimmtudag.
,,Við sýndum að við getum vel unnið þá og þetta er bara undir okkur komið. Við geutm ekkert slakað á og haldið að við séum komnir áfram núna og vanmetið þá. Við þurfum að halda áfram að gera það sem við gerðum og þá held ég að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af neinu," sagði Eggert en sigurvegarinn úr viðureignunum tveimur kemst á EM í Danmörku á næsta ári.
,,Það yrði frábært fyrir okkur alla strákana og íslensku þjóðina yfir höfuð. Við ætlum að ná þessu markmiði og klára þetta."
Eggert stóð sig vel í fyrri leiknum en hann er að spila í hjarta varnarinnar í fjarveru Jóns Guðna Fjólusonar.
,,Ég hef spilað þar nokkrum sinnum með Hearts þegar að það eru meiðsli og svona. Liðið þarf að hafa einhvern þarna núna og þá er lítið mál að fara þarna inn."
Leikurinn í kvöld fer fram á Easter Road heimavelli Hibernian en Eggert spilar sjálfur með nágrannaliðinu Hearts í Edinborg.
,,Ég hef spilað marga Derby-leiki þarna og þekki þetta vel. Mér hefur oftar en ekki gengið vel þarna og vonandi heldur það áfram á morgun (í dag) bara," sagði Eggert.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























