Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska landsliðsins sagði eftir 1-3 tap liðsins gegn Portúgal í kvöld að hann hyggist halda áfram með liðið.
,,Við höldum okkar striki, það er engin spurning. Ég ætla að gera það allavega," sagði Ólafur við fréttamenn eftir leikinn.
,,Auðvitað er það spælandi að vera ekki kominn með neitt út úr þessu. Ég vil meina að við séum búnir að spila þessa þrjá leiki heilt yfir alveg fínt. En eins og ég hef margoft sagt áður hefur það verið vandamál í okkar leik, ekki bara undir minni stjórn, heldur á undan líka, það hefur verið sóknarleikurinn. Hann hefur oft verið svolítið vandamál."
,,Ég held að þetta sé fyrsti leikurinn sem við fáum á okkur þrjú mörk síðan í fyrsta landsleik. Svo varnarleikurinn hefur verið í lagi í gegnum tíðina, en kannski er ég svo varnarsinnaður að ég bind menn í varnarleik. Það getur vel verið. Það er þá eitthvað sem Pétur (Pétursson aðstoðarmaður Ólafs) þarf að skoða, hann er sóknarmaður í þessu teymi."





















