Gomes gríðarlega eftirsóttur - Liverpool og Man Utd með í kappinu um Guéhi - Liverpool missir af Gordon og skoðar Adeyemi - Barca vill losna við De...
banner
   mið 15. maí 2024 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
England: Palmer og Nkunku sáu um Brighton
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Brighton 1 - 2 Chelsea
0-1 Cole Palmer ('34)
0-2 Christopher Nkunku ('64)
1-2 Danny Welbeck ('98)
Rautt spjald: Reece James, Chelsea ('88)

Brighton og Chelsea áttust við í fyrri leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og voru gestirnir frá London sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

Cole Palmer skoraði með skalla á 34. mínútu eftir fyrirgjöf frá Marc Cucurella og hélt Nicolas Jackson að hann hafði tvöfaldað forystuna skömmu síðar en ekki dæmt mark vegna naumrar rangstöðu.

Mykhailo Mudryk byrjaði leikinn á vinstri kanti en hann lenti í höfuðmeiðslum og var skipt af velli fyrir Christopher Nkunku á 42. mínútu.

Chelsea var áfram sterkara liðið í síðari hálfleik og tvöfaldaði Nkunku forystuna á 64. mínútu, eftir stoðsendingu frá Malo Gusto.

Brighton hélt boltanum vel innan liðsins og komst oft í góðar stöður á síðasta sóknarþriðjunginum en það vantaði upp á gæðin.

Reece James kom inn af bekknum á 69. mínútu í liði Chelsea en hann hefur verið fjarverandi vegna meiðsla allt árið. Hann tórði í tæpar 20 mínútur á vellinum áður en hann fékk beint rautt spjald fyrir að bregðast reiðilega við broti Joao Pedro á sér. James sparkaði í áttina að Joao Pedro og var rekinn útaf eftir athugun í VAR herberginu.

Danny Welbeck kom inn af bekknum og minnkaði muninn fyrir Brighton en hann skoraði alltof seint til að hafa áhrif á niðurstöðuna. Lokatölur 1-2 fyrir Chelsea.

Þetta er fjórði sigur Chelsea í röð í úrvalsdeildinni og er liðið í frábærri stöðu í baráttunni um Evrópusæti. Lærisveinum Mauricio Pochettino nægir jafntefli til að tryggja sjötta sæti deildarinnar og þá geta þeir einnig freistað gæfunnar og reynt að stela fimmta sætinu af Tottenham. Til að það gangi upp þurfa þeir að treysta á að Spurs tapi í Sheffield í lokaumferðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner