Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, vonast til að keppni hefjist í spænsku úrvalsdeildinni í lok maí eða í júní.
Útgöngubann er á Spáni til 26. apríl vegna kórónuveirunnra en margir hafa smitast og látið lífið þar í landi vegna veirunnar.
Útgöngubann er á Spáni til 26. apríl vegna kórónuveirunnra en margir hafa smitast og látið lífið þar í landi vegna veirunnar.
Spænsk félög gæti tapað einum milljarð evra ef ekki tekst að klára núverandi tímabil og Tebas vonast til að boltinn fari aftur að rúlla, jafnvel strax 28. maí.
„Af öllum sviðsmyndunum sem við höfum skoðað hjá UEFA þá er líklegast að við byrjum 28. maí, 6. júní eða 28. júní," sagði Tebas.
„Við getum ekki sagt nákvæma dagsetningu. Yfirvöld á Spáni gefa okkur hana. Við þurfum að fá tíma til að æfa áður en að því kemur."
Athugasemdir