Börsungar vilja varnarmann Bournemouth - Man Utd vill tvo leikmenn - Igor Thiago til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   fim 18. maí 2023 23:09
Sölvi Haraldsson
Rúnar Kristins: Þá er eitthvað ekki í lagi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er geggjað að vinna fótboltaleik loksins. Það skiptir okkur miklu máli að vera komnir áfram í bikar. Mér fannst frammistaðan góð stærstan hluta leiksins, við vorum mjög óheppnir með mörkin sem við fengum á okkur og hefðum getað skorað fleiri en fjögur. Við fáum fullt af færum og það er bjargað á línu en ég er bara fyrst og fremst ánægður með að hafa náð í sigur loksins.“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir dramatískan 4-3 sigur á Fylki í bikarnum.


Lestu um leikinn: Fylkir 3 -  4 KR

Aðdragandinn í þriðja marki KR var mjög skrítinn þegar Jakob Franz, leikmaður KR, og Orri, leikmaður Fylkis, þurftu að fara útaf í smá stund vegna meiðsla. Jakob fékk að koma inn á en ekki Orri. Þá voru Fylkismenn 10 á móti 11 og KR fóru upp í sókn og skoruðu rétt fyrir hálfleik. Hverngi sást þú þetta?

„Ég bara tók ekki eftir því.“

Þú hlýtur að vera sáttur með framlag Jóhannes Kristins í dag.

„Ég er mjög ánægður með Jóa. Hann fer vaxandi og hefur kannski veirð að skapa flestu færin fyrir okur í sumar og er mjög skapandi leikmaður. Hann var í aðeins nýrri stöðu í dag og leysti hana bara ógeðslega vel. Mjög gott að skora fjögur mörk en því miður þá fáum við bara allt of mörg mörk á okkur. Við þurfum að leysa úr því einhvern veginn.“

Fyrsta markið ykkar í fimm leikjum, er þetta léttir?

„Já þú vilt skora mörk. Það er mjög svekkjandi að fara í gegnum fimm leiki án þess að skora og þá er eitthvað að og ekki í lagi. En við leystum það í dag og ég er mjög sáttur með það.“

Helduru að þessi sigur mun gefa ykkur mikið fyrir komandi átök í Bestu deildinni?

„Já að sjálfsögðu. Leikmenn eru komnir með sjálfstraust og trúa á það að við getum unnið fótboltaleiki og skorað mörk. Við þurfum bara að nýta okkur þennan meðbyr og halda þessu áfram.“

Kristján Flóki fer útaf meiddur í fyrri hálfleik, veistu hvernig staðan á honum er?

„Hann fékk höfuðhögg snemma í leiknum. Síðan spilaði hann lengur í tæpar tíu mínútur og fattaði það bara allt of seint. Spurning hvort hann hafi fengið heilahristing, ég bara veit það ekki.“

Ertu með einhvern draumadrátt?

„Nei ekkert frekar. Það eru bara mjög góð lið eftir svo þetta skiptir ekkert miklu máli.“ sagði Rúnar Kristinsson eftir sætan 4-3 sigur á Fylki í Árbænum í kvöld.

Viðtalið má finna í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner