Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 19. maí 2023 09:24
Elvar Geir Magnússon
Stjóri AZ: Skammast mín fyrir hegðun áhorfenda
Frá átökunum á heimavelli AZ í gær.
Frá átökunum á heimavelli AZ í gær.
Mynd: Getty Images
Eftir að flautað var til leiksloka í leik AZ Alkmaar og West Ham í Sambandsdeildinni þá réðst hópur stuðningsmanna hollenska liðsins inn á það svæði stúkunnar þar sem vinir og ættingjar leikmanna West Ham sátu.

Leikmönnum enska liðsins stóð ekki á sama, þeir óttuðust um öryggi síns fólks og Said Benrahma, Michail Antonio, Aaron Cresswell og Flynn Downes voru meðal manna sem blönduðu sér í átökin.

Heimildarmaður Guardian segir að sem betur fer hafi boltabullurnar ekki komist langt upp í stúkuna. Hann hafði mestar áhyggjur af hollenskum fjölskyldum sem festust á milli í átökunum.

„Ég biðst afsökunar á hegðun þessara manna. Maður skammast sín þegar svona gerist á eigin leikvangi. Þetta á ekki að gerast. Menn þurfa að hafa hemil á tilfinningum sínum," segir Pascal Jansen, stjóri AZ.

West Ham vann einvígið 3-1 og mætir Fiorentina í úrslitum þann 7. júní í Prag.
Athugasemdir
banner
banner
banner