Crystal Palace og Manchester United mætast klukkan 16:30 í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en spilað er á Selhurst Park, heimavelli Palace.
Oliver Glasner, stjóri Palace, gerir tvær breytingar. Daichi Kamada og Chris Richards koma inn fyrir Daniel Munoz og Cheick Doucoure, en sá síðarnefndi er að glíma við támeiðsli.
Það eru þá áhugaverðar breytingar hjá United. Marcus Rashford, sem hefur verið heitur í síðustu tveimur leikjum kemur út og kemur Alejandro Garnacho inn.
Rasmus Höjlund og Manuel Ugarte eru einnig á bekknum.
Crystal Palace: Henderson; Richards, Guehi, Lacroix; Muñoz, Wharton, Kamada, Mitchell; Eze; Nketiah, Mateta
Man Utd: Onana; Mazraoui, De Ligt, Martínez, Dalot; Eriksen, Mainoo; Garnacho, Bruno Fernandes, Amad; Zirkzee
Athugasemdir