Úrúgvæski sóknarmaðurinn Darwin Nunez fékk loks tækifæri til að sannfæra Arne Slot um ágæti sitt í dag og nýtti hann það tækifæri frábærlega.
Nunez hafði byrjað á bekknum í fjórum leikjum á tímabilinu og fengið fáar mínútur til að spreyta sig.
Umræða hefur verið á lofti um framtíð Nunez, sem gæti verið að hugsa sér til hreyfings, en það er líklega ekki þörf á því sem lengi sem hann nýtir færin.
Hann skoraði frábært mark gegn Bournemouth í dag og kom Liverpool í 3-0.
Nunez fékk boltann úti hægra megin, stöðvaði boltann, færði hann á vinstri og klíndi honum í fjærhornið í stöng og inn. Í fagninu sást hvað þetta mark hafði mikla þýðingu, en hann felldi nokkur tár og má segja að tilfinningarnar hafi borið hann ofurliði.
Sjáðu markið hjá Nunez
Darwin Núñez in tears after his goal, they can never make me hate him. pic.twitter.com/NZ0n4pcEBg
— H (@TheLiverpoolEra) September 21, 2024
Athugasemdir