lau 28. maí 2011 15:00
Hafliði Breiðfjörð
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er í opinni dagskrá
Frá Wembley þar sem leikurinn fer fram í kvöld.
Frá Wembley þar sem leikurinn fer fram í kvöld.
Mynd: Getty Images
Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu, viðureign Barcelona og Manchester United, verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 í kvöld en eins og venja er er úrslitaleikurinn alltaf sýndur út óruglaður.

Leikið er á Wembley í Lundúnum þar sem spennan magnast með hverri mínútunni fyrir þessum stærsta leik ársins í Evrópæu.

Gríðarleg spenna er fyrir leiknum sem hefur verið sagður stærsti úrslitaleikur mótsins í fjölda ára enda gríðarlega sigursæl lið að mætast.
banner
banner
banner