19. umferðin í Inkasso-deild karla lauk um síðustu helgi en athyglisverð úrslit urðu í umferðinni.
Fjölnismenn undir stjórn Ásmundar Arnarssonar fóru illa með Þrótt og unnu 6-0 sigur á heimavelli. Ásmundur er þjálfari umferðarinnar. Auk þess er Sigurpáll Melberg Pálsson og Albert Brynjar Ingason í liði umferðarinnar.
Fjölnismenn undir stjórn Ásmundar Arnarssonar fóru illa með Þrótt og unnu 6-0 sigur á heimavelli. Ásmundur er þjálfari umferðarinnar. Auk þess er Sigurpáll Melberg Pálsson og Albert Brynjar Ingason í liði umferðarinnar.
Hlynur Örn Hlöðversson og Gunnar Gunnarsson eru fulltrúar Fram í liðinu en Fram gerði markalaust jafntefli gegn Víkingi Ó. í Safamýrinni.
Nacho Heras er síðan í vörninni með Gunna Gunn. og Sigurpáli. Leiknir vann 2-0 sigur á Haukum á heimavelli. Árni Elvar Árnason er einnig í liðinu í annað sinn í sumar.
Gróttumennirnir, Sölvi Björnsson og Ástbjörn Þórðarson eru báðir í liði umferðarinnar í annað sinn í sumar en Grótta fór á Grenivík og vann þar 2-0 sigur.
Magnús Þór Magnússon er fulltrúi Keflavíkur sem vann Þór 2-0. Þá eru þeir frammi Stefán Birgir Jóhannesson og Andri Freyr Jónass en Njarðvík og Afturelding gerðu 2-2 jafntefli í Mosfellsbænum.
Sjá fyrri lið umferðarinnar:
Lið 18. umferðar
Lið 17. umferðar
Lið 16. umferðar
Lið 15. umferðar
Lið 14. umferðar
Lið 13. umferðar
Lið 12. umferðar
Lið 11. umferðar
Lið 10. umferðar
Lið 9. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir