Kjartan Henry Finnbogason var maður leiksins í kvöld þegar Fylkir tók á móti KR. Kjartan átti fínan leik og skoraði að auki stórglæsilegt mark í 1-4 sigri KR.
,,Já þetta var flottur sigur hjá okkur. Mér fannst við líka spila skemmtilega og vel þarna á köflum. Rifum okkur upp á rassgatinu eftir að hafa enn einu sinni fengið á okkur mark"
Mörk KR kom í öllum regnbogans litum í kvöld, bakfallspyrna hjá Guðjóni Baldvinssyni og mark Kjartans af 25 metra færi.
,,Já Gaui klúðraði málunum, því að fara framhjá markmanninum og leggja hann, það hefði verið of einfalt fyrir hann, nei hérna nei nei. Glæsilegt mark hjá honum með því að taka hjólhestaspyrnuna þarna. Hann er náttúrlega svo sterkur og góður í þessu. Síðan hitti ég boltann svona vel með vinstri og það kom okkur í gang"
KR eru komnir í bílstjórasætið í deildinni því ef þeir vinna þá leiki sem eftir er að þá verða þeir Íslandsmeistarar.
,,Jáhá pældu í því maður. Okkur er ekki einu sinni að dreyma það. Þetta er bara svona second chance eiginlega. Þetta er búið að ganga vel með að hugsa um einn leik í einu og því miður þú ert ekki að fara að fá neitt út úr mér, það er bara einn leikur í einu" sagði Kjartan Henry í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Nánar er rætt við Kjartan í sjónvarpinu hér að ofan.























