Kristinn Steindórsson leikmaður Breiðabliks og efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins samkvæmt sparkspekingum Stöðvar 2Sport var að vonum hæstánægður með Íslandsmeistaratitilinn.
„Ég er ekki alveg að ná þessu. Þetta er (ritskoðað) geðveikt. Þetta er bara of mikið sko,“ sagði Kristinn.
Hann viðurkenndi að stress hefði verið í mönnum fyrir leikinn en segir að þeir hafi bara reynt að spila sinn leik.
„Það var náttúrulega fiðringur og stress í mönnum fyrir þennan leik, kannski ekki margir sem hafa spilað leik sem þennan. En við reyndum bara að spila okkar leik og náðum að skapa ágætis færi en ekki skora. En þetta gekk upp hjá okkur og við eigum þetta skilið.“
Viðtalið við Kristin má sjá í heild sinni hér að ofan.






















