
Valur fékk FH í heimsókn á Origo völlinn í dag í 32-liða úrslítum Mjólkurbikarsins þar sem FH vann 1-2 sigur og eru komnir í 16-liða úrslitin. Eiður Aron Sigurbjörnsson miðvörður Vals var svekktur eftir leik og sagði liðið ekki hafa verið með í leiknum til að byrja með.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 2 FH
„Þetta er bara ömurlegt, við hefðum viljað fara áfram en við tökum ekki þátt í leiknum megnið af fyrri hálfleik og það er eins og við höfum ekki trú á þessu fyrr en við skorum þetta mark."
Valsmenn hafa styrkt lið sitt með mörgum nýjum leikmönnum en aðspurður sagði Eiður að það sé ekki vandamál að leikmenn þekkist ekki í hópnum. Það eigi bara eftir að smella núna á næstunni.
„Það virkar kannski þannig en við þekkjum hvorn annan mjög vel, það er bara næsti leikur, ég held þetta fari að detta hjá okkur. Það eru þessi nokkur prósent sem menn þurfa að leggja á sig aukalega og þetta kemur ekkert af sjálfu sér. Það er erfitt að benda á einhvern einn hlut sem vantar, þeir eru allir frábærir leikmenn og eru búnir að vera hérna síðan í janúar. Við þekkjum allir hvorn annan vel og það er bara einhver smá tenging sem vantar hjá okkur, þegar það kemur verðum við mjög erfiðir við að eiga."
Eiður segir að allir séu að leggja sig fram og vonast til að hlutirnir fari að detta í næstu leikjum eftir léleg úrslit og vonbrigði með eigin frammistöðu í byrjun móts.
„Menn eru að leggja sig 100% fram, ég ætla ekki að fara segja neitt um hvað menn eru að gera, ég var lélegasti leikmaður Íslands í síðasta leik, það er bara vonandi að þetta fari að detta í næstu leikjum."
Athugasemdir