Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. ágúst 2022 18:16
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Vals og FH: Óli Jó gegn félaginu sem rak hann um mitt sumar
Ólafur Jóhannesson og Hilmar Þór Guðmundsson, fastakúnni á Kaffi Vest.
Ólafur Jóhannesson og Hilmar Þór Guðmundsson, fastakúnni á Kaffi Vest.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 hefst leikur Vals og FH á Origo vellinum á Hlíðarenda. Ólafur Jóhannesson stýrir Valsmönnum gegn félaginu sem rak hann um mitt sumar.

Anton Freyr Jónsson, fréttamaður Fótbolta.net, er á Hlíðarenda og textalýsir leiknum hér á Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 FH

Á lokadegi félagaskiptagluggans fylgdi danski miðjumaðurinn Lasse Petry þjálfaranum Óla Jó yfir til Vals. Hann er hinsvegar ekki í leikmannahópi Valsmanna. Heiðursmannasamkomulag?

Arnór Ingi Kristinsson sem kom frá Leikni á gluggadeginum byrjar á bekknum hjá heimamönnum en Aron Jóhannsson kemur inn í byrjunarliðið eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik.

Tveir leikmenn Vals eru í banni í kvöld vegna uppsafnaðra gulra spjalda en það eru miðjumennirnir Birkir Heimisson og Arnór Smárason sem verða uppi í stúku í kvöld. Hjá FH tekur Steven Lennon út leikbann.

Bæði lið hafa ollið vonbrigðum í sumar, Valur er í fimmta sæti en FH er hreinlega í bullandi fallbaráttu og situr í tíunda sæti.

Byrjunarlið Valur:
1. Frederik Schram (m)
0. Haukur Páll Sigurðsson
2. Birkir Már Sævarsson
3. Jesper Juelsgård
7. Aron Jóhannsson
9. Patrick Pedersen
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Guðmundur Andri Tryggvason
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
4. Ólafur Guðmundsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Davíð Snær Jóhannsson
16. Guðmundur Kristjánsson
22. Ástbjörn Þórðarson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner