![Lengjudeildin](/images/leng_150x150.png)
Keflvíkingar sóttu stig á Extra-völlinn í kvöld í 0-0 jafntefli gegn Fjölni í Lengjudeild karla.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 0 Keflavík
''Bara svona eftir leik erum við ánægðir með stigið, bardaga leikur sem bæði lið vildu vinna. Erfiður útivöllur og fínt að fá stig eftir skell í síðasta leik.
''Ég veit ekki hvort við getum talað um frammistöðu úti í Eyjum, það var hafsjór þar og erfitt að spila fótbolta, það var enginn fótbolti en að því sögðu þá gerðu Eyjamenn betur með vindinn í bakið.''
Keflvíkingar fengu gagnrýni fyrir undirbúninginn fyrir Eyjaleikinn þar sem Kristján Óli, sérfræðingur í Þungavigtinni talaði um að hann hafi mætt Keflvíkingum koma úr Herjólfi 90 mínútum fyrir leik, Haraldur gaf lítið fyrir þá gagnrýni og sendi hana til föðurhúsanna.
''Kristján Óli hefur aldrei farið til Eyja nema á Þjóðhátíð eða á Orkumótið, uppleggið var frábært og sendi þau til föðurhúsanna.
Nánar var rætt við Harald í spilaranum hér að ofan.