„Tilfinningin er frábær, gríðarlega ánægður með liðið og hópinn í dag. Góð liðsheild, góð frammistaða, mikið hugrekki og karakter að koma til baka. Gríðarlega sáttur með strákana í dag," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir endurkomusigur gegn Fylki í kvöld.
Var þetta 'do or die' leikur fyrir ykkur, þurftuð þið að vinna?
„Já og nei, þetta var á móti liði sem er aðeins fyrir ofan okkur í töflunni og með því að fá þrjú stig komumst við í snertingu við liðin sem eru fyrir ofan. Það hefði verið ansi bratt, þó að það sé mikið af leikjum eftir, fyrir sálina aðallega ef við hefðum ekki fengið þrjú stig í dag."

Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 2 HK
Það hefur verið umræða um Birni Snæ Ingason og hans framtíð. Víkingur bauð í Birni en HK neitaði tilboðinu.
Er Birnir að fara klára tímabilið með ykkur?
„Já, ég er búinn að segja það við hópinn. Það er möguleiki að einn, tveir leikmenn komi inn en það er alveg ljóst að það er enginn að fara frá okkur."
Brynjar segir ekkert ákveðið varðandi mögulega nýja leikmenn. Erum við að tala um erlenda leikmenn?
„Við erum að kíkja á það, meira heldur en hér heima," sagði Brynjar Björn.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir