Liverpool og Man Utd skoða Kolo Muani - Rashford of dýr fyrir PSG - Tekur Heitinga við WBA?
   fös 12. maí 2023 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásgeir Sigurgeirs spáir í leiki helgarinnar í enska
Kominn með þrjú mörk í sex leikjum.
Kominn með þrjú mörk í sex leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wilson og Isak gleðja Ella Qta.
Wilson og Isak gleðja Ella Qta.
Mynd: Getty Images
Rashford bjargar geðheilsu United manna.
Rashford bjargar geðheilsu United manna.
Mynd: EPA
Trossard með stoðsendingaþrennu.
Trossard með stoðsendingaþrennu.
Mynd: Getty Images
Húsvíkingurinn Ásgeir Sigurgeirsson, markahæsti leikmaður KA á tímabilinu, er spámaður helgarinnar í enska boltanum. Um þriðju síðustu umferð deildarinnar er að ræða.

Stefán Ingi Sigurðarson, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar, spáði í leiki síðustu umferðar og var með fjóra rétta.

Leeds 1 – 2 Newcastle (11:30 á morgun)
Leeds kemur inn í leikinn af krafti og kemst fljótt í 1-0 með marki frá bamford. Newcastle koma seint til baka en ná að setja 2 á síðustu 10. Wilson og Isak með mörkin og Elli Qta hoppar hæð sína.

Aston Villa 3 – 0 Tottenham (14:00 á morgun)
Þetta verður easy leikur hjá Emery og hans mönnum. Hann hendir í eitt gott good ebening og þessi leikur verður búinn í fyrri hálfleik.

Chelsea 1 - 0 Nottingham (14:00 á morgun)
Skelfilega leiðinlegur leikur en Mudryk mun setja sitt fyrsta mark í þessum leik. En það verður dæmt af og Felix reddar þeim með skallamarki.

Crystal Palace 0 – 0 Bournemouth (14:00 á morgun)
Þetta verður leiðinlegasti leikur helgarinnar og ekki orð um það meir.

Man Utd 2 - 0 Wolves (14:00 á morgun)
Höldum Hrannari góðum og spáum þessum leik sem easy 2-0 sigur. Rashford með bæði mörkin hjá þessu leiðinlega Man U liði.

Southampton 0 - 3 Fulham (14:00 á morgun)
Mitrovic kemur reiður til baka og setur 3 mörk í þessum leik. Hendir mögulega svo í eitt rautt eftir það.

Brentford 1 - 1 West Ham (13:00 á sunnudag)
Þessi verður ekki mikið fyrir augað en kemur jöfnunarmark á lokamínútunum. Veit ekki frá hverjum.

Everton 0 - 3 Man City (13:00 á sunnudag)
Því miður vinnur City þennan leik auðveldlega. Haaland með 2 og Grealish 1. Vel þreytt dæmi þetta City lið.

Arsenal 3 – 1 Brighton (15:30 á sunnudag)
Mínir menn í Arsenal lenda undir, Welbeck með markið. Trossardin kemur inn af bekknum og reddar þessu með stoðsendingar þrennu.

Leicester 2 – 0 Liverpool (19:00 á mánudag)
Leicester eyðileggur meistaradeildar drauma Liverpool og fara úr fallsæti í leiðinni. Vardy og Maddison með mörkin og allir sáttir.

Fyrri spámenn:
Teddi Ponza - 8 réttir
Aron Mímir - 7 réttir
Guðmundur Stephensen - 6 réttir
Nökkvi Þeyr Þórisson - 7 réttir
Katrín Jakobsdóttir - 6 réttir
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir - 6 réttir
Óskar Smári - 6 réttir
Tómas Þór - 6 réttir
Höddi Magg - 6 réttir
Atli Hrafn - 5 réttir
Hjálmar Örn Jóhannsson - 5 réttir
Hjálmar Stefánsson - 5 réttir
Jón Axel - 5 réttir
Arnar Daði - 5 réttir
Magnús Valur - 5 réttir
Kristján Atli - 5 réttir
Stefán Ingi Sigurðarson - 4 réttir
Logi Geirsson - 4 réttir
Albert Hafsteins - 4 réttir
Adam Ægir Pálsson - 4 réttir
Magnús Kjartan - 4 réttir
Hallur Flosason - 4 réttir
Höskuldur Gunnlaugs - 4 réttir
Ingimar Helgi Finnsson - 4 réttir
Danijel Dejan Djuric - 3 réttir
Arna Sif - 3 réttir
Viðar Hafsteins - 3 réttir
Albert Hafsteins (2) - 3 réttir
Jason Daði Svanþórsson - 3 réttir
Siggi Gunnars - 3 réttir
Birkir Már Sævarsson - 2 réttir
Oliver Heiðarsson - 1 réttir
Enski boltinn - Allt í einu bullandi pressa frá Liverpool
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 16 12 3 1 37 16 +21 39
2 Chelsea 18 10 5 3 38 21 +17 35
3 Nott. Forest 18 10 4 4 24 19 +5 34
4 Arsenal 17 9 6 2 34 16 +18 33
5 Newcastle 18 8 5 5 30 21 +9 29
6 Bournemouth 18 8 5 5 27 21 +6 29
7 Man City 18 8 4 6 30 26 +4 28
8 Fulham 18 7 7 4 26 23 +3 28
9 Aston Villa 18 8 4 6 26 29 -3 28
10 Brighton 17 6 7 4 27 26 +1 25
11 Tottenham 18 7 2 9 39 26 +13 23
12 Brentford 17 7 2 8 32 32 0 23
13 West Ham 18 6 5 7 23 30 -7 23
14 Man Utd 18 6 4 8 21 23 -2 22
15 Everton 17 3 8 6 15 22 -7 17
16 Crystal Palace 18 3 8 7 18 26 -8 17
17 Wolves 18 4 3 11 28 40 -12 15
18 Leicester 17 3 5 9 21 37 -16 14
19 Ipswich Town 17 2 6 9 16 32 -16 12
20 Southampton 18 1 3 14 11 37 -26 6
Athugasemdir
banner
banner
banner