
Núna klukkan 18:45 hefst leikur Íslands og Portúgal á Laugardalsvelli í undankeppni EM. Óhætt er að segja að það sé gríðarlega eftirvænting fyrir þessum leik. Fótbolti.net fór á stjá og hitti Atla Viðar Björnsson, fyrrum leikmann FH og sérfræðing í Stúkunni á Stöð2Sport í Fan Zone-i KSÍ fyrir leikinn.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 Portúgal
„Ég er bara mjög spenntur, við erum hérna inn í Fan-zoneinu og það er mikið líf, fullt af fólki, góð stemming, gott veður og ég held að það sé bara skemmtilegt kvöld framundan." sagði Atli Viðar Björnsson við Fótbolta.net fyrir leikinn gegn Portúgal.
„Ég held að það sé alveg ljóst að við verðum ekki mikið með boltann. Ég held að þetta sé spurning um að standa vörnina og sjá hvort við getum búið til 1-2 færi og náð að koma inn marki."
Ísland byrjaði gríðarlega vel gegn Slóvakíu en byrjunin á þessum leik í kvöld gegn Portúgal verður allt öðruvísi.
„Byrjunin á þessum leik verður öðruvísi en byrjunin á þeim leik en þetta snýst um að gera eitthvað í þeim tækifærum sem við fáum ef þau verða einhver og klárlega nýta færin okkar ef þau koma."