

Alexander Aron Davorsson þjálfari Aftureldingar í Lengjudeild kvenna var að vonum svekktur að leikslokum eftir 2:1 tap gegn Fram í Úlfarsárdalnum í kvöld og þá sérstaklega hvernig lið Aftureldingar mætti til leiks.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 1 Afturelding
„Byrjunin á leiknum var svekkjandi og hvernig við komum stemmdar til leiks. Fram átti sigurinn skilinn í dag,“ sagði Alexander við Fótbolta.net í kvöld.
„Við erum búin að vinna tvo leiki í röð á móti Víkingi og Augnabliki sannfærandi. Við vitum það að við erum Afturelding og það vilja allir vinna okkur. Leikmenn Fram mættu miklu betur stemmdir til leiks í dag og höfðu engu að tapa,“ sagði Alexander.
Framundan er tíu daga pása hjá Aftureldingu sem hefur 11 stig eftir átta umferðir en Alexander segir að liðið þurfi „að vera á eldi“ á síðari hluta tímabilsins ætli það sér einhverja hluti í haust.
„Framundan er 10 daga pása, að æfa vel og reyna að koma vel stemmd í seinni hluta tímabilsins. Við þurfum að „mæta á eldi“ í seinni hluta tímabilsins ef við ætlum að gera eitthvað,” sagði Alexander en bætti því þó við að deildin væri afar jöfn í ár og að leikirnir réðust oftar en ekki á litlum atriðum.
„En eins og ég hef sagt um þessa deild, ég er búinn að horfa á þessa deild í þrjú ár, ég hef aldrei séð jafn jafna deild. Þetta er svolítið dagsformið í þessari deild og leikirnir ráðast á einum tveimur mörkum. Eins og í dag - munurinn var í dag að Fram vildi þetta en ekki við. Það er eitthvað sem gerist hjá öllum liðum í heiminum - þú átt „off” dag. Í dag áttum við „off“ dag þótt það væri geggjað veður,” sagði Alexander.

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |