Chelsea tilbúið að selja Enzo - Man Utd vill Gomes - Anderson og Wharton líka á óskalista United
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   þri 23. júní 2020 22:07
Mist Rúnarsdóttir
Jóhannes Karl: Hræðsla í liðinu
Kvenaboltinn
Jóhannes Karl var hundsvekktur eftir skellinn gegn Blikum
Jóhannes Karl var hundsvekktur eftir skellinn gegn Blikum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er algjör skellur og langt frá því sem við ætluðum að gera,“ sagði hundsvekktur Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR, eftir 6-0 tap gegn Breiðablik á Kópavogsvelli.

Lestu um leikinn: Breiðablik 6 -  0 KR

„Í raun og veru fannst mér við koma ágætlega inn í leikinn og byrjum fyrstu 5 mínúturnar betur en síðustu leiki. En svo lendum við undir. Við finnum það fljótlega að þær hafa mikinn hraða og ógna hátt upp. Í staðinn fyrir að þora að halda okkar leikskipulagi fannst mér við falla til baka alltof snemma og opna liðið upp á gátt. Þegar þú gerir það á móti liði eins og Breiðablik þá færðu það bara í andlitið,“ sagði Jóhannes Karl um leikinn og talaði um hugarfarið og óttann við að halda skipulagi.

„Mér fannst einhver hræðsla í liðinu í dag og það kemur mér á óvart því ef maður lítur yfir leikmannahópinn þá er þetta feykilega sterkt lið á pappírunum.“

KR hefur verið spáð ýmist í 4. eða 5. sæti deildarinnar og leikmenn og þjálfarar hafa talað um að að markmið liðsins sé að berjast í efri hlutanum. Eftir þrjá fyrstu leiki mótsins er liðið hinsvegar stigalaust með ellefu mörk í mínus á botni deildarinnar.

„Þetta er nýbyrjað og það er nóg eftir af fyrri helmingi mótsins,“ sagði Jóhannes Karl.

„Eins og staðan er í dag þá getum við ekki litið á okkur sem eitthvað lið sem er í efri hlutanum. Við erum í neðri hlutanum og þurfum stig til að koma okkur upp í efri hlutann. Við þurfum þrjú stig í næsta leik.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner