mán 27. júní 2016 23:11
Magnús Már Einarsson
Aron tapaði veðmáli - Þarf að setja Brasilian Tan á sig
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, þarf að setja brúnkukremið Brasilian Tan á sig eftir EM í Frakklandi.

Ástæðan er sú að hann tapaði veðmáli við unnustu sína Kristbjörgu Jónasdóttur.

„Ég var búinn að gera veðmál við konuna. Núna þarf ég að setja brasilian tan á mig allan af því að við komumst áfram," sagði Aron eftir 2-1 sigurinn á Englandi í kvöld.

„Þetta er skelfilegt. Þetta verður gert eftir mót,"

Kristbjörg, unnusta Arons, er með umboð fyrir Brasilian Tan en fræðast má meira um vöruna hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner