Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 28. september 2016 09:50
Elvar Geir Magnússon
Stóri Sam stunginn í bakið af vini sínum til 30 ára
Scott McGarvey á því herrans ári 1984.
Scott McGarvey á því herrans ári 1984.
Mynd: Getty Images
Maðurinn á myndinni er Scott McGarvey, fyrrum leikmaður Manchester United og Portsmouth.

Stóri Sam Allardyce hefur opinberað að það hafi verið hann sem hafi fengið sig til þess að mæta á uppsetta fundinn þar sem dulbúnir blaðamenn Telegraph veiddu hann í gildru.

McGarvey varð umboðsmaðurinn eftir ferilinn en hann og Allardyce hafa verið góðir vinir í 30 ár.

„Ég gerði manni greiða sem ég hef þekkt í 30 ár, því miður þá voru það stór mistök af minni hálfu," segir Allardyce.

Allardyce lét af störfum sem landsliðsþjálfari Englands eftir umræddan fund sem blaðamennirnir tóku upp.



Athugasemdir
banner
banner
banner