,,Þetta var bara baráttuleikur eins og við bjuggumst við," sagði Ingvar Jónsson markvörður Njarðvíkur eftir markalaust jafntefli gegn Fylki í Lengjubikar karla í kvöld.
Ingvar ræddi við Fótbolta.net í sjónvarpsviðtali eftir leikinn en hann sá nokkrum sinnum til þess að Fylkir næði ekki að skora í leiknum með góðum markvörslum.
Í viðtalinu segist hann meðal annars ætla sér að komast í U21 árs landsliðið og stefna á að leika með liði í efstu deild á næsta ári.
,,Ég á alveg heima í úrvalsdeild vil ég meina, ég er kominn á það level," sagði hann í viðtalinu sem má sjá hér að ofan.






















