Silja Þórðardóttir leikmaður FH var grautfúl eftir tap gegn Breiðablik í kvöld og enn sitja FH stelpur á botninum án stiga. Þær voru samt ekki langt frá því í kvöld að innbyrða sitt fyrsta stig í deildinni en tvö mörk Breiðablik á loka mínútunum gerðu drauma FH að engu.
,,Við erum ótrúlega svekktar að hafa ekki náð að klára þetta. Annað markið hjá þeim var algjört óþarfa mark og við það féll þetta aðeins niður hjá okkur enda lítill tími til að jafna."
,,Það vantaði eitthvað uppá í dag eins og er kannski búið að vera í sumar en okkur finnst eins og við séum eitthvað að vinna okkur upp," sagði Silja.
Nánar er rætt við Silju í sjónvarpinu að ofan.






















