Real undirbýr 220 milljóna evra tilboð í Olise - Arsenal og Liverpool með augastað á Barcola - Man Utd vill landsliðsmarkvörð Paragvæ
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   mið 23. júní 2010 23:17
Hafliði Breiðfjörð
Hjörtur Hjartar: Verð að fara að drullast til að skora
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Þetta gekk ekki nógu vel í dag. Þróttararnir voru viljugri og skoruðu þetta mark upp úr horni og það er vont að fá á sig svona úr föstum leikatriðum. En þeir vildu þetta meira og þetta var sanngjarnt þegar á heildina er litið," sagði Hjörtur Júlíus Hjartarson framherji ÍA eftir 0-1 tap gegn Þrótti í VISA-bikarnum í kvöld.

,,Mér fannst þeir alltaf líklegri, það var meiri vilji og barátta í þeim. En auðvitað áttum við að skora og gefa þeim meiri leik heldur en við gáfum þeim. En þetta fór svona, við áttum að geta fengið eitthvað út úr þessum leik en fengum ekki neitt."

Liðin mætast svo að nýju í 1. deildinni á laugardag og þá gefst ÍA kostur á að hefna tapsins í kvöld.

,,Jájá en það er bara svo rosalega grátlegt að vera kominn í 16 liða úrslit og fá heimaleik gegn liði í sömu deild og þú og vera með svona góðan möguleika á að komast í 8 liða úrslit."

,,Svo eru fleiri lið úr þessari deild ennþá í pottinum, og meira að segja fyrir neðan okkur líka, svo það þarf ekki mikið að gerast svo maður sé kominn hálfa leið á Laugardalsvöllinn er því er að skipta. Við vorum þarna í dauðafæri að komast svolítið langt."

,,Jújú, það verður gaman að fá að mæta þeim aftur á laugardaginn, en það er önnur keppni og við þurfum að vinna þar. Þeir fá ekki alveg svona silkimjúka meðferð á laugardaginn, ég ætla að vona það allavega."


Nánar er rætt við Hjört í sjónvarpinu hér að ofan en Hjörtur ræðir meðal annars um að hann æfi ekki mikið þessa dagana útaf HM en hann er íþróttafréttamaður á RÚV.

,,Ég hef rosalega gaman af þessu en fyrst og síðast vonast ég að ég geti nýst liðinu á einhvern hátt. Ég verð að fara að drullast til að skora til að gera það, ég hjálpa þeim lítið með því að koma af bekknum og skora ekki eða vera á byrjunarliðinu og skora ekki. Það er svona mitt markmið allavega.
Slapp
banner
banner